Það nýjasta frá framkvæmdum að
Hörgslandi er að komið hefur verið upp internettengingum á öllu
svæðinu á Hörgslandi, afar öflugri þráðlausri ADSL tengingu,
bæði á tjaldstæðum og í húsum.
Nú getur ferðafólk komist á
netið tengst og lesið sinn vefpóst, einnig er þetta tilvalið fyrir
vinnufundi sem haldnir væru að Hörgslandi, þar sem fundamenn hafa
fullan aðgang að internetinu bæði til viðhalds og fróðleiks.
Rekstraraðilinn að Hörgslandi
hefur lagt metnað sinn í að gera alla aðstöðu sem best úr garði
bæði hvað varðar aðstöðu í sumarhúsum eða á tjaldstæði.
Veitingar eru veglegar á
Hörgslandi og bjóðum við upp á ýmiskonar hlaðborð sem geta hentað
hverjum og einum hóp.
Á Hörgslandi er gott að slaka á eftir eril dagsins og spjalla í
góðum hóp.
Við leggjum metnað okkar að láta öllum líða vel á Hörgslandi.
Leitið verðtilboða fyrir stærri
hópa og pantið tímanlega. |